Þetta er ungur og þægilegur Malbec frá Finca Las Moras í Argentínu. Ólíkt flestum argentínskum vínhúsum sem hér eru fáanleg er Las Moras ekki með vínrækt sína í Mendoza heldur í héraðinu San Juan.
Dökkrautt á lit, í byrjun rífur vínið svolítið í, ungt hart, áfengið áberandi og kryddað, lakkrís. Það mýkist hratt ef það fær að standa og springur út með þægilegum dökkum ávexti, plómum og bláberjum, Milt með sætum ávexti.
60%
1.799 krónur. Ágæt kaup.
-
6