Vínin frá Gerard Bertrand eru smátt og smátt öll að færast formlega yfir í vín með lífræna vottun og sú er raunin með þetta vín hér. Raunar eru Sauvignon Blanc-vínin frá Bertrand nýjung hér. Sauvignon Blanc er ekki dæmigerð þrúga fyrir suðurhluta Frakklands en þar er hún ræktuð á ekrum í nokkurri hæð þar sem loftslag er milt. Maður finnur engu að síður sólina í þessu víni, sætur, þroskaður sítrus, rifinn sítrónubörkur, lemongrass og melónur, mínaralískt, ferskar kryddjurtir ferskt, þurrt með þægilegum ávexti í munni.
80%
2.299 krónur. Frábær kaup. Með grilluðum fiski, sushi eða sem fordrykkur.
-
8