Vínsýning Haugen verður 8. september

Fimmtudaginn 8. september mun Haugen Gruppen halda vínsýningu sína í Gamla Bíói. Sýningin er opin öllum og stendur yfir frá kl. 17:00 – 21:00. Um 20 erlendir framleiðendur/birgjar munu koma til landsins til að kynna vörur sínar og er þetta því frábært tækifæri til að fræðast, smakka og fá svör við spurningum.

Fremstu barþjónar landsins munu svo hrista kokteila ofan í gesti sýningarinnar ásamt því að boðið verður upp á matar og bjórpörun. Vínsýning Haugen Gruppen er haldin annað hvert ár og hér að neðan er að finna myndskeið frá síðustu sýningu sem haldin var í veislusal Rúbín í Öskjuhlíðinni 2014.

Hér fyrir neðan má svo sjá myndband sem tekið var á sýningunni 2014.

Deila.