Cloudy Bay Sauvignon Blanc 2015

img_2606Það þarf ekki að sannfæra neinn lengur um að einhver bestu Sauvignon Blanc-vín í heimi eru ræktuð á Nýja-Sjálandi. Það eru hins vegar ekkert afskaplega mörg ár síðan að það þurfti að sannfæra menn um að það væru yfirhöfuð framleidd vín þar í landi. Vínið sem átti mestan þátt í því að koma Nýja Sjálandi og ekki síður Sauvignon Blanc á kortið var Cloudy Bay og enn í dag er þetta eitt besta vínið sem þar er framleitt.

Fágað, þetta vín er allt það sem Marlborough-vín eiga að vera, þarna eru garðaber, kívi, lime og ananas, það er þykkt, ágengt og það vex eftir því sem það fær að standa lengur opið. Kröftugt, með þéttri sýru, míneralískum og löngum endi.

100%

4.499 krónur. Frábært vín.

  • 10
Deila.