E. Guigal Cotes-du-Rhone 2012

img_2608Það er ekki að ósekju að Marcel Guigal hefur unnið sér orð sem einn besti framleiðandi ekki bara heimahéraðsins Rhone heldur einnig Frakklands og þar með raunar heimsins. Það eru öll vínin hans framúrskarandi og það á líka við um hið „einfalda“ Cotes-du-Rhone sem í höndum Guigal stendur alltaf fyrir sínu. Ólíkt flestum öðrum Cotes-du-Rhone-vínum er það Syrah-þrúgan sem er í aðalhlutverki. Dökk ber í nefi, skógarber, krækiber, kryddjurtir,  lakkrís, þétt í munni, kröftugt, rífur smá í, sýrumikið, piprað. Frábært.

90%
  • 9
Deila.