Cune Imperial Reserva 2011

img_2605Það er rétt tæp öld frá því að vínhúsið Cune setti fyrsta Imperial-vínið á markað en nafnið má rekja til þess að flöskustærðin sem vínið var tappað á fyrir Bretlandsmarkað var af stærðinni „Imperial Pint“. Imperial hefur alla tíð síðan verið eitt af helstu vínum Rioja og það viðmið sem önnur vínhús horfa gjarnan til.  Imperial-vínin koma af 28 hektara ekrum Cune á svæðinu Rioja Alta og þess má geta að Gran Reserva 2004 af Imperial var valið vín ársins af timaritinu WIne Spectator árið 2013.

Þetta er stórt, mikið vín. Svartur, þroskaður ávöxtur, mjög eikað, kókos, vanilla. tóbakslauf, sedrusviður, kóngabrjóstsykur. Mikil lengd, þykk og þétt tannín.

100%

4.799 krónur. Frábært vín, góð kaup.

  • 10
Deila.