Marques de Casa Concha Cabernet Sauvignon er frábært dæmi um það hversu vel þessi franska þrúga nýtur sín í Maipo-dalnum í Chile, einu elsta víngerðarhéraði landsins. Vínið er dökkt, kröftugt alla leið, heitur, kryddaður sólberjaávöxtur, mynta, vanillustöng, ungt og tannískt, mun batna við geymslu og mun njóta góðs af umhellingu.
90%
2.999 krónur. Frábært rauðvín, naut og mild villibráð á borð við hreindýr.
-
9