Golden Reserve línan frá Trivento hefur ávallt verið í miklu uppáhaldi enda eru þarna á ferðinni hreint ótrúlega góð vín miðað við verð. Malbec-þrúgan er auðvitað fyrir löngu orðið helsta flaggskip víngerðarinnar í Argentínu og þar er nú ræktað mun meira af slíkum vínum en á upprunalegu heimaslóðum þrúgunnar í suðvesturhluta Frakklands.
Svarblátt, krydduð angan af bláberjum og krækiberjum, plómur, í nefi líka reykur og vanilla, blómaangan, fjólur. Aflmikið í munni, ungt, kröftug tannín, langt. Gefið víninu tíma, umhellið.
90%
2.999 krónur. Frábær kaup. Með lambi, villigæs, nauti og hreindýri.
-
9