Allt frá því að Cloudy Bay var stofnað í Wairau-dalnum í Marlborough á Nýja-Sjálandi árið 1985 hefur Cloudy Bay verið eitt fremsta vínhús landsins og er í hugum margra eitt helsta tákn nýsjálenskra gæðavína. Þrátt fyrir að flestir tengi Marlborough við þrúguna Sauvignon Blanc standa Chardonnay-vínin þeim hins vegar jafnfætis og stundum vel það.
Ljóst, í fyrstu sítrus, greip og límóna, einnig melóna en síðan kemur betur og betur í ljós hversu flókið og margslungið vínið er, ristaðar hnetur, smjörkennt, reykur og eldspýtur, þykkt og mikið, eikað, góð og fersk sýra.
100%
4.599 krónur. Frábær kaup. Vín fyrir humar.
-
10