J.C. Boisset Bourgogne Aligote Les Moutots 2014

img_3375Það eru örlög Aligote-þrúgunnar að falla í skuggann á Chardonnay, þrúgunni sem að er alpha og omega hvítvínsgerðarinnar í Búrgund. Aligote hefur því alltaf verið í eins konar Öskubusku-hlutverki og þær minningar sem maður á um þessa þrúgu hafa ekki verið eftirminnilegar. Yfirleitt voru Aligote-vínin skörp og lítt heillandi, fyrst og fremst til þess fallinn að vera notuð í Kir ásamt sólberjalíkjör svæðisins, Cassis de Dijon.

Þetta vín er hins vegar allt önnur Ella, hérna er töfradísin búin að snerta Öskubusku. Þetta er virkilega heillandi og sjarmerandi fín, ekki flókið en með búrgundarlegum elegans, mild sítrusangan, þroskuð niðursoðin sítróna, vanilla og blóm, það fer ekki á milli mála að þetta er Búrgundari, ferskt og flott.

80%

2.699 krónur. Frábær kaup. Spennandi vín.

  • 8
Deila.