E. Guigal Chateauneuf-de-Pape 2010

img_3363Marcel Guigal er hinn ókrýndi konungur Rónardalsins og vínin hans eru undantekningarlaust tæknilega fullkomin og glæsileg. Þekktastur er hann fyrir einnar ekru Cote Rotie-vínin en nánar má lesa um þetta merkilega vínhús með því að smella hér. Chateauneuf-du-Pape vínið frá Guigal er með ríkjandi Grenache í blöndunni, 70% ásamt 20% Syrah og 10% Mourvédre. Töluvert meiri Syrah en í siðasta árgangi.

2010 var stór og flottur árgangur í Rhone og þetta er magnað vín. Það er dökkt á lit og í nefi er áberandi míneralískur dökkur kirsuberjaávöxtur, krækiber, svartar ólífur og krydd, örlítið lakkrís,reykur,  þetta er vín sem opnar sig hægt, það er gott að umhella því, það mun verðlauna það. Verulega elegant og fágað. Má vel geyma í all mörg ár.

100%

6.299 krónur. Frábær kaup.

  • 10
Deila.