Trivento er eitt af vínhúsunum í eigu Concha y Toro-fjölskyldunnar frá Chile en það var stofnað árið 1997 í þeim tilgangi að nýta hina stórkostlegu aðstæður til víngerðar sem er að finna í Argentínu „hinum megin“ við Andesfjöllin. Vínin frá Trivento hafa reynst einstaklega traust og hlutfall verðs og gæða með því besta sem maður rekst á.
Malbec-þrúgan er síðan auðvitað sú þrúga sem mesta athygli hefur vakið frá Argentínu þótt hún komi upprunalega frá suðvesturhluta Frakklands. Í dag eru argentínsku Malbec-vínin hins begar bæði mun þekktari og vinsælli en hin frönsku.
2016 árgangurinn af Malbec í Reserve-línunni sver sig í ættina. Vínið er auðvitað enn mjög ungt, afskaplega dökk á lit, svarfjólublátt. Þetta er vín sem mun lifa í einhvern tíma og halda áfram að þróast vel næstu 2-3 árin en heillar strax fyrir djúpan, hreinan og bjartan sólberjaávöxt ásamt bláberjum og fjólum. Það vottar fyrir eikinni, vínið er kryddað, smá piprað og kröftugt. Leyfið víninu að anda í smá tíma áður en það er borið fram.
1.999 krónur. Frábær kaup. Með rauðu kjöti.
-
8