Massimo di Lenardo er maðurinn á bak við vínhúsið di Lenardo í Friuli Venezia Giulia-vínhéraðinu í norðausturhluta Ítalíu og hafði forgöngu um það fyrir um þrjátíu árum að fjölskyldan, sem hafði stundað vínrækt frá því á nítjándu öld fór að gera sín eigin vín í stað þess að selja þrúgurnar til annarra.
Eitt af athyglisverðari vínum hússins er Just Me en nafnið er vísun í þrúguna í víninu sem er enginn önnur en Merlot. Það eru nokkur athyglisverð Merlot ræktuð í Friuli og Just Me er vissulega eitt af þeim. Einnar ekru vín, lítið uppskerumagn og vínið geymt á litlum tunnum úr amerískri eik í 18 mánuði áður en það fer á flösku. Þetta er vín sem þarf nokkur ár og sem betur fer er þessi árgangur ekki of ungur heldur er vínið farið að sýna sig aðeins.
Þetta er alls ekki dæmigert norður-ítalskt Merlot-vín, þéttur dökkur kirsuberjaávöxtur, töluvert míneralískt, í nefi núggat og möndlur. Það er þykkt, töluvert sýrumikið og breiðir vel úr sér, mjúk og þroskuð tannín. Virkilega flott vín
2.790 krónur. Frábær kaup.
-
9