Canepa Classico Cabernet Sauvignon 2015 BIB

Kassavínin njóta alltaf vinsælda enda hafa þau sína kosti, t.d. verð og umbúðir sem gott er að flytja á milli staða, t.d. í bústaðinn. Þessi kassi frá Canepa í Chile er í þægilegri stærð, tveggja lítra. Vínið er með dökka, kryddaða berjaangan, sólber og krækiber, þykkt, ávöxturinn heitur með sólþroskaðri sætu án þess að verða væmið.

60%

3.699 krónur fyrir tveggja lítra box eða sem samsvarar um 1.387 krónum á 75 cl flösku. Góð kaup á því verði.

  • 6
Deila.