Fourchaume er ein af þekktustu premier cru ekrunum í Chablis. Ekran er staðsett rétt norður af sjálfu þorpinu Chablis, snýr beint í suður og jarðvegurinn einkennist af miklum kalksteini. Suðurlegan gefur þrúgunum meiri sól sem endurspeglast í kraftmiklu, víni sem nær þó að halda í skerpuna og fínleikann sem einkennist bestu Chablis-vínin. Fallega ljósgult, suðrænir ávextir blandast saman við skarpan sítrusinn, þurrt og míneralískt, kalksteinn, undirliggjandi kraftur, flottur sýrustrúktúr. Verulega gott vín.
90%
3.699 krónur. Frábært vín. Með humar, laxi og fáguðum sjávarréttum.
-
9