Campillo Reserva Selecta 2010

Campillo vínhúsið í La Guardia í Rioja Alavesa vakti mikla athygli þegar að það var byggt á sínum tíma enda eitt af örfáum vínhúsum Rioja sem eru byggð í frönskum Chateau-stíl, það er með glæsilegri byggingu sem umlukin er vínekrunum þar sem vínið sjálft er ræktað. Rioja-hefðin er meira sú að vínhúsin nota þrúgur héðan og þaðan af svæðinu.

Það eru nú að verða ein þrjátíu ár síðan að Julio Faustino Martinez byggði  „chateau“-ið sitt og Campillo vínin eru orðin nokkuð rótgróin. Þetta eru tiltölulega nútímaleg Rioja-vín með áherslu á ávöxtinn þótt hefðin sé aldrei langt undan þegar að Faustino er annars vegar.

Reserva Selecta er enn meira vín en hið þó virkilega ágæta Reserva og hefur verið geymt í tæp tvö ár á tunnum úr amerískri eik áður en því er tappað á flöskur. Það er líka alltaf ánægjulegt að bragða á vínum frá 2010 árganginum, einn af þeim allra bestu í Rioja undanfrain ár.

Litur vínsins er þéttur, dökkur og djúpur, enn ungt að sjá. Mjög fókuserað, þétt, míneralískt, brómber, jarðarber, ávöxturinn þroskaður samofin leðri og sedrusviði, langt og mjúkt.

90%

2.998 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.