Bibi Graetz er víngerðarmaður í Toskana á Ítalíu sem hefur vakið mikla athygli á meðal víngerðarmanna á síðustu árum. Hann er ekkert að nota alþjóðlegar þrúgur heldur einbeitir sér að hinum upprunalegu þrúgum héraðsins á borð við Sangiovese og Canaiolo í rauðvínum og Graetz fjölskyldan er hins vegar langt í frá rótgróin ítölsk víngerðarfjölskylda. Móðir hans er norsk og faðir hans ísraelskur en þau gerðu Toskana að heimili sínu og keyptu þar kastala skammt frá Flórens, Castello di Vincigliata þar sem Bibi ólst upp og hóf með árunum listnám í Flórens og útskrifaðist úr myndlist í frá Academia della Belle Arti.
Samhliða listnáminu óx áhugi Bibi á vínum og upp úr aldamótum ákvað hann að hefja sjálfur víngerð úr þrúgunum sem ræktaðar voru á fjölskylduekrunum en höfðu fram að því verið seldar öðrum framleiðendum. Hann leggur mikið upp úr gömlum vínvið og vínin eru nú eftirsótt um allan heim þótt flöskurnar sem framleiddar eru séu ekki margar. Bibi fær svo útrás fyrir listamanninn í sér með því að mála myndirnar á flöskumiðunum.
Hvítvínið Casamatta er blanda úr Vermentino (60%), Trebbiano og Moscato. Ljósgult á lit, í nefinu sætar perur og perubrjóstsykur, þroskuð epli, vottur af ferskjum og hvít blóm. Milt og þægilegt hvítvín, vel balanserað, ferskt og lifandi.
1.999 krónur. Geggjað verð fyrir þetta vín.
-
9