Adobe er lína lífrænt ræktaðra vína frá vínhúsinu Santa Emiliana í Chila. Þau hafa verið fáanleg hér í búðum um margra ára skeið. Þetta eru vel gerð og nútímaleg vin sem alla jafna gefa eru að standa sig með prýði þegar horft er á gæði miðað við verð. Að þessu sinni skoðum við kassavínið úr Chardonnay-þrúgunni. Þetta er milt og létt hvítvín, fölgult, angan af sítrus, sítróna og greip, það hefur þurrt yfirbragð, ágætan ferskleika og milda sýru. Hið prýðilegasta kassavín.
70%
6.499 krónur eða sem samsvarar 1.625 krónum á 75 cl. flösku. Mjög góð kaup.
-
7