Shiraz eða Syrah ef við viljum nota franska heitið er sú rauða þrúga sem flestir tengja líklega við Ástralíu, enda unir hún sér mjög vel í hitanum þar suðurfrá. Sá sem líklega var fyrstur til að rækta þessa þrúgu í Ástralíu var Breti að nafni George Wyndham sem hóf vínrækt í Hunter Valley á fyrri hluta nítjándu aldar. Vínhúsið sem ber nafn hans er í dag í eigu Pernod-Ricard og Shiraz-vínið Bin 555 er traust og fínt Shiraz-vín. Liturinn er dökkur og djúpur og ávöxturinn í nefinu er svarfjólublár, þarna eru plómur og krækiber, nokkur vanilla og reykur, yfirbragðið er þurrt, vínið hefur ágæta þykkt og ferskleika.
2.699 krónur. Mjög góð kaup.