Alphart Ried Hausberg Neuburger 2018

Þrúgan Neuburger er sjaldgæf þrúga, blendingur úr Roter Veltliner og Sylvaner og vín úr þessari þrúgu koma oft skemmtilega á óvart.Weingut. Alphart hefur getið sér orð sem einhver athyglisverðasti hvítvínsframleiðandi Austurríkis en vínhúsið á um 20 hektara af ekrum í Thermenregion suður af Vín.

Fölgult á lit, í nefi eplaveisla, þarna eru þroskuð epli, gul og græn, perur, eplamauk út í smá sætan síder, sítróna og ristaðar hnetur, ferskt svolítið feitt, grösugt í lokinn.

80%

2.999 krónur. Frábær kaup. Með bleikju, laxi og mildum ostum.

  • 8
Deila.