Somontano er eitt af mörgum gamalgrónum spænskum vínhéruðum sem hefur verið að ganga í endurnýjun lífdaga. Það er að finna undir rætum Pýrenea-fjalla um 200 kílómetra norðvestur af Barcelona og ´vinræktina má rekja til þess tíma er Rómverjar réðu ríkjum á þessum slóðum. Eitt af helstu vínhúsum svæðisins er Bodegas Sommos og standard-vínið frá þeim heitir Glárima. Fyrir um ári fjölluðum við um rauðvínið frá þessu vínhúsi og nú er hvíta systurvínið einnig fáanlegt hér á landi, blanda úr þrúgunum Chardonnay og Gewurztraminer. Þær njóta sín báðar vel hér en segja má að Gewurztraminer ráði ríkjum í angan vínsins en Chardonnay gefur strúktúrinn. Vínið hefur ljósan gulan lit og í nefi eru apríkósur og þroskaðar ferskjur, suðrænir ávextir og blóm. Þurrt í munni með ágætri sýru, ferskt með sumarlegum blæ.
2.620 krónur. Frábær kaup.
-
8