Grenache under my skin 2018

Grenache under my skin er eitt af vínunum frá hinum franska Jeff Carrelsem nú eru fáanleg í sérpöntun í vínbúðunum. Carrel er frábært dæmi um nýja kynslóð franskra víngerðarmanna sem að nálgast víngerðina á frumlegan hátt. Hann er fæddur í París og eftir að hafa numið efnafræði í háskóla ákvað hann að söðla um, hélt til Suður-Frakklands og lærði vínfræði í Montpellier.  Eftir að hafa unnið með nokkrum þekktum vínhúsum hóf hann framleiðslu á vínum undir eigin nafni, aðallega í Languedoc-Roussillon, auk þess að starfa sem víngerðarráðgjafi víða um Frakkland, á Priorat á Spáni og víðar.

Eins og nafnið gefur til kynna er þetta vín úr Grenache-þrúgum (einnig 20% Syrah) og þær koma af 60 ára gömlum vínvið frá þorpinu Maury  í Languedoc. Maury vínin voru lengst af þekktust sem sætvín en frá 2011 hefur þorpið einnig AOC-skilgreiningu fyrir þurr vín. Þetta er mikið vín, nálgast raunar sætvín í áfengi með heil 15,5%. Það er dökkt á lit og dökkur og sætur ávöxtur gýs upp úr nefi þess, þroskuð, allt að því sultuð bláber og reykur, hindberjahlaup, sprittað, það er þykkt, heitt og langt, þetta er vín sem mun eldast vel og tekur stöðugum breytingum eftir því sem að fær að standa lengur opið. Mæli með umhellingu. 

90%

3.798 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.