
Á árum áður var ekki heiglum hent fyrir bandaríska víngerðarmenn að komast yfir góðar franskar eikartunnur og ameríska eikin var fyrst og fremst notuð í tunnugerð fyrir viskíframleiðendur í Kentucky sem höfðu efni á slíku. Því brugðu einhverjir á það ráð að kaupa nýjar af viskíhúsunum og jafnvel notaðar eftir að bourbonið hafði þroskast í þeim í einhver ár. 1000 Stories er vín framleitt af Fetzer í Mendocino þar sem sótt er aftur í þessa gömlu aðferð og notaðar samskonar tunnur og vískíhúsin í Kentucky.
Zinfandel-þrúgan getur tekið á sig ýmsar myndir. hér er hún þykk og dökk, áxöturinn heitur og svolítið þurrkaður, út í sveskjur og sultaðar plómur, vínið er þykkt, svolítið stíft, kryddað með vott af anís. Ágætlega ferskt.
3.799 krónur. Mjög góð kaup. Með grilluðu lambi og ræður alveg við grillkjöt í BBQ-sósu.
-
8