
Beaune er að mörgu leyti hjarta víngerðarinnar í Búrgund. Þótt rómuðustu ekrur héraðsins falli kannski ekki innan bæjarmarkanna þá hefur borgin öldum saman verið miðstöð víniðnaðar Búrgund. Maison Louis Latour er með rótgrónari vínhúsum héraðsins, það var stofnað 1797 en þá var liðin rúmlega hálf öld frá því að Latour fjölskyldan hóf að fjárfesta í ekrum á svæðinu. Þetta rauðvín frá AOC Beaune er auðvitað hreint Pinot Noir, vínviðurinn 30 ára að meðaltali. Liturinn er nokkuð dökkur og þéttur fyrir Pinot, þurrkaður rifs og kirsuber, þarna er líka kóngabrjóstsykur og vínið er nokkuð míneralískt, tannínin mjúk og þægileg. Ávöxturinn er þykkur og mjúkur ber þess að merki að þetta var mjög heitur árgangur.
6.299 krónur. Mjög góð kaup. Með lambi eða önd.
-
9