Bjór

Bjór er snar þáttur í menningu flestra ríkja enda er bjórframleiðsla ekki háð sömu landfræðilegu takmörkunum og vínrækt. Bjórin var hins vegar lengi vel bannvara á Íslandi og því var það yfirleitt fyrsta verk flestra þegar farið var úr landi að fá sér einn kaldan. Á síðustu tveimur áratugum hefur bjórframleiðsla hins vegar fest sig rækilega í sessi á Íslandi og stöðugt fjölgar frambærilegum íslenskum bjórum á heimsmælikvarða.