Þetta rauðvín kemur frá Bordeaux í suðvestur-Frakklandi blanda úr þrúgunum Merlot og Cabernet Sauvignon og er Merlot sú sem er ríkjandi.
Vínið hefur góð og dæmigerð Bordeaux-einkenni, sólber og krækiber, ávöxturinn skarpur og ungur með ferskum kryddjurtum. Í munni mild tannín og góður svartur berjaávöxtur.
Vín fyrir rétti á borð við kálfakjöt með ólívum.
2.199 krónur