Þetta er svolítið öðruvísi pizza enda er notuð BBQ-sósa í staðinn fyrir hina hefðbundnu tómatasósu. Óneitanlega minnir hún svolítið á grilltíma sumarsins.
- 1 skammtur pizzadeig
- 1 stór rauðlaukur
- 400-500 g beinlaust kjúklingakjöt, t.d. lundir eða læri
- Mozzarella-ostur
- 2,5 dl af uppáhalds BBQ-sósunni
- 1 búnt kóríander, saxað
Skerið laukinn í sneiðar og síðan í tvennt. Mýkið laukinn í olíu á pönnu í 3-4 mínútur. Geymið
Skerið kjúklinginn í bita og steikið í olíu á pönnu (eða grillið). Blandið saman við BBQ-sósuna og geymið.
Fletjið pizzudeigið út og forbakið botninn Við um 230 gráður í 5-7 mínútur. Takið út og dreifið kjúklingnum í sósunni yfir botninn. Næst ostinum og svo lauknum. Bakið þar til ostinn hefur bráðnað vel. Dreifið söxuðum kóríanderlaufum yfir.