Terruyno-vínin eru meðal allra bestu vín chilenska vínrisans Concha y Toro og eru gerð úr þrúgum af tilteknum bletti innan einnar ekru. Carmenere-þrúgurnar sem notaðar voru til framleiðslu á þessu víni koma þannig af bletti sem nefndur er Block 27 af ekrunni Peumo í Cachapoal í Rapel-dalnum.
Hrikalega dökkt, nær svart. Þykk, sæt angan, blek og mynta, djúpur sólberjasafi, mjög kryddaður. Í munni hins vegar silkimjúkt þótt vínið sé öflugt og massað. Nýjaheims-kraftabolti. Með t.d. rjúpu eða annarri kröftugri villibráð eða hægeldaðri stórri nautasteik.
3.999 krónur. Frábær kaup.