Pepperoni-pylsurnar eru vinsælar á pizzur en það má nota margt annað. Spænskar chorizo-pylsur, sem fást nú í flestum stórmörkuðum, eru til dæmis tilvaldar sem pizzuálegg og gefa bökunum svolítið öðruvísi blæ.
Hráefni
- 1 skammtur pizzudeig
- tómatapassata/tómatasósa
- 1 bréf chorizo
- 1 dós „Ítalía“ kirsuberjatómatar í kryddolíu
- 2 pakkar af heilum mozzarella
- basilblöð
Aðferð
- Fletjið deigið út og penslið með ólívuolíunni sem kirsuberjatómatarnir eru geymdir í.
- Dreifið tómatasósunni yfir í þunnu lagi.
- Dreifið niðursneiddri chorizo-pylsunni yfir og því næst tómötunum.
- Skerið mozzarellakúlurnar í hálfs til eins sentimetra sneiðar og dreifið þeim um pizzuna.
- Bakið á pizzusteini á grilli eða í 225 gráðu heitum ofni þar til botninn er bakaður og osturinn bráðnaður.
- Sáldrið niðursneiddum basilblöðum yfir áður en pizzan er borin fram.