Sólkoli með Charon-sósu

Charon-sósan er  klassísk frönsk sósa, náskyld Béarnaise og er yfirleitt notuð með fiski. Hún er til dæmis tilvalin með sólkola eða rauðsprettu.

Hráefni

  • 1/2 dl vínedik
  • 1/2 dl hvítvín
  • 2 skalottulaukar, saxaðir
  • 2 msk fínt saxað estragon
  • 2 msk, fínt söxuð steinselja
  • 10 svört piparkorn
  • 1 lítil dós tómatakraftur
  • 3 eggjarauður
  • 150 gr smjör

Aðferð

  1. Setjið edik, hvítvín, skalottulauk og estragon í pott.
  2. Merjið piparkornin í morteli og setjið út í eða piprið vel með piparkvörn.
  3. Sjóðið niður þar til um ein matskeið er eftir.
  4. Bætið þá við tómatkrafti og einni matskeið af vatni. Pískið saman.
  5. Bætið eggjarauðunum saman við og pískið áfram á vægum hita þar til þær fara að þykkjast.
  6. Bætið smjörinu smám saman við og pískið allan tímann.
  7. Hellið í gegnum síu og bætið saxaðri steinseljunni við. Ef sósan skilur sig er hægt að kippa henni í liðinn með því að píska matskeið af köldu vatni saman við.

Charon-sósa er afbragð með fiski og hér á myndinni er hún borin fram með grilluðum sólkola. Skerið þvert yfir fiskinn niður að miðjubeininu á báðum hliðum. Penslið með ólívuolíu, saltið, piprið og kreystið smá sítrónu yfir. Setjið álpappír á grillið og grillið fiskinn. Hann þarf ekki langan tíma, 5-8 mínútur eftir þykkt. Berið fram á fati ásamt grilluðum kartöflubátum, fersku salati og Charon-sósunni.

Með þessu gott hvítvín, s.s. Pascal Lachaux Bourgogne Blanc.

Deila.