Þetta er rauðvín úr þrúgunni Merlot frá vínhúsinu Lamberti við Garda-vatnið í Veneto á Ítalíu. Merlot er ein af Bordeaux-þrúgunum hefur náð fótfestu víða og nýtur töluverðra vinsælda í Veneto en hinn ítalski stíll þrúgunnar hefur sín einkenni.
Lamberti Santepietre Merlot 2009 er létt, mjúkt með kryddaðri rifsberja- og kirsuberjaangan og smá grænni papriku. Mild tannín í munni, þægilega mjúkt. Ágætis pastavín, ekki síst með kjötsósum.
1.799 krónur.