La Vendemmia er Chianti Classico frá toskanska vínhúsinu Dievole. Vínið er ungt og öflug. Dökkt á lit, byrjar svolítið lokað, stíft og tannískt og því ágætt að opna það tímanlega og jafnvel umhella.
Dökkur, djúpur og kirsuberjaávöxtur, sólber, töluvert eikað með vanillu og reyk í nefinu ásamt tóbakslaufum. Nokkuð kryddað, piprað, örlítill vottur af einiberjum. Þétt og kröftug tannín, góður strúktur, langt og mikið. Frábært matarvín.
3.750 krónur.