Willm Pinot Gris 2009

Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr. Willm-fjölskyldan, sem þá rak veitingahús í Barr, stofnaði víngerðina 1896 og náði fljótt undraverðum árangri í útflutningi.

Willm var orðinn helsti útflytjandi Alsace-vína til Bandaríkjanna þegar bannárin skullu á. Enn í dag er útflutningur mikilvægur hluti af starfseminni og Willm er í hópi þeirra vínhúsa sem er hvað fyrirferðarmest í útflutningi til Norður-Ameríku og Evrópu.

Þetta er hvítvín úr þrúgunni Pinot Gris sem þar til fyrir nokkrum árum gekk undir nafninu Tokay-Pinot Gris. Það hefur hefur þægilega angan og í nefi er vanillusykur, þurrkaðir, sætir ávextir og hunang. Í angan er jafnvel að finna botrytis-einkenni líkt og í sætvínum en í munni er vínið elegant og þurrt.

2.599 krónur.

 

Deila.