Chapoutier Granges de Mirabel 2009

Rónarhéraðið í Suður-Frakklandi er mun þekktari fyrir rauðvínin sín en hvitvínin. Þar eru þó framleidd mörg áhugaverð hvítvín meðal annars úr þrúgunni Viognier. Nafntoguðustu Viognier-vínin koma frá þorpinu Condrieu en sunnar í héraðinu er hún einnig töluvert ræktuð.

Þetta lífræna hvítvín frá Chapoutier er frá svæðinu Ardéche, syðst í Rhone, rétt við Provence. Ef eitthvað eitt einkennir Viognier þá er það apríkósuangan og hún kemur vissulega fram hér, bæði ferskar apríkósur og þurrkaðar, í nefi eru einnig jasmínblóm, hunang og sítrusávöxtur. Vínið er þykkt, þurrt með þéttum míneralískum keim.

2.999 krónur. Góð kaup.

 

Deila.