Pata Negra eru vín frá vínhúsinu Bodegas Los Llanos í Valdepenas-héraðinu á Mið-Spáni. Þetta vín er blanda úr tveimur þrúgum, hinni spænsku Tempranillo og hinni frönsku Cabernet Sauvignon.
Þetta er ágætlega kröftugt vín miðað við verð, í nefi grænar paprikur, jarðaberjasulta og viður, í munni kemur skarpur apótekaralakkrís fram, vínið kryddað og heitt. Hefur gott af því að standa aðeins fyrir opnun áður en það er borið fram.
1.499 krónur. Góð kaup.