Chianti-rauðvínið Da Vinci fékk á dögunum viðurkenningu hjá Gambero Rosso sem eitt þeirra Chianti-vína með besta hlutfall verðs og gæða. Viðurkenningin sem um ræðir heitir „Berebene Low Cost 2011“ og þykir mjög eftirsóknarverð, enda er Gambero Rosso vínbíblía þeirra Ítala og hefur gífurleg áhrif.
Fjallað var um Da Vinci á Vínótekinu á dögunum og má lesa um vínið með því að smella hér.