Librandi Duca San Felice 2010

Librandi Duca San Felice er Rosso Classico frá héraðinu Ciró í Kalabríu, syðst á Ítalíu. Þrúgan er ekki sú þekktasta en hún er allrar athygli verð, heitir Gaglioppo og verður líklega best lýst sem ansi lík Pinot Noir en með rammítölsku ívafi.

Við höfum áður fjallað hér um ódýrara Ciró vínið frá Librandi, ótrúlega góð kaup í sínum verðflokki. Þetta Classico-vín er dýrara en engu að síður með betri fulltrúum í sínum verðflokki. Það er nokkuð ljóst á lit, í nefisæt, þroskuð kirsuber, plómur, appelsínubörkur,  möndlukaramella, þurrkaðir ávextir á borð við fíkjur og nokkuð kryddað. Ávöxturinn þykkur, mjúkur og kryddaður í munni, kryddin austræn, kanill, negull. Þetta er bara ansi magnað ´vín. Þolir alveg einherja geymslu. Reynið með vel hanginni nautasteik eða þurrum ostum.

2.980 krónur. Frábær kaup.

Deila.