Gérard Bertrand Syrah 2011

Suður-frönsku vínin frá Gérard Bertrand valda sjaldan vonbrigðum enda hér á ferðinni traustur gæðaframleiðandi sem heldur háum standard ekki síður í fjöldaframleiddu vínunum.

Vínið dökkt, fjólublátt, djúpur, þroskaður og kryddaður ávöxtur. Krækiber, plómur, piprað og kryddað. Kröftugt í munni, góð fylling, ungt, tannískt, kryddað. Með lambalæri eða hrygg, gjarnan með mikið af kryddjurtum á borð við rósmarín og óreganó.

2.399 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.