La Vieille Ferme er rauðvín frá Ventoux í suðurhluta Rhone-dalsins í Frakklandi en til skamms tíma gekk þetta víngerðarsvæði undir nafninu Cotes du Ventoux. Þetta er dæmigert suður-franskt vín hvað þrúgusamsetninguna varðar eða blanda úr Grenache, Cinsault og Syrah. Sumarið 2009 var mjög heitt og þurrt á þessum slóðum og vínþrúgurnar náðu mjög góðum þroska.
Vínið er bjart, ávaxtaríkt og aðgengilegt. Rauð ber og krydd í nefi, þægilegur, mjúkur og léttkryddaður ávöxtur í munni, mildur vottur af tanníni sem gefur víninu aukna þyngd og bit. Einfaldur en bara ansi lunkinn Suður-Frakki fyrir sumarmáltíðir. Á heitum dögum mætti jafnvel bera það fram örlítið kælt – en þó ekki kalt.
1.950 krónur. Mjög góð kaup.