Þetta er ferskt og fljótlegt salat sem hægt er að nota með flestum kjötréttum.
- 1/2 kálhaus
- 2 litlir rauðlaukar
- 1/2 steinseljubúnt
- 2 msk vínedik
- 1/2 dl ólífuolía
- salt og pipar
Hreinsið ystu blöðin frá kálinu og skerið kjarnan innan úr. Skerið kálhausinn í bita, setjið í matvinnsluvél og saxið varlega. Saxið næst laukin og steinseljuna. Blandið öllu saman í stórri skál.