Klassísku kjötbollurnar eru hér settar í nýjan búning og eldaðar í ofni með mozzarellakúlum og kirsuberjatómötum.
Kjötbollurnar:
- 500 grömm nautahakk
- 1 egg
- 1/2 tsk sojasósa
- hvítur pipar
- chiliflögur
- sjávarsalt
Tómatasósa
- 2 dósir tómatar
- 1 dl vatn
- kjötkraftur
- hrásykur(val)
- 1 tsk cumin
- rifinn börur af einni sítrónu
- salt og pipar
Að auki þarf:
- 2 dl parmesanostur
- 2 pokar litlar mozzarellakúlur
- kirsuberjatómatar
Blandið nautahakki, eggi, sojasósu og kryddum saman. Mótið litlar kjötbollur og steikið þær á pönnu. Blandið öllu hráefninu sem á að fara í tómatasósuna saman í eldföstu fati. Setjið kjötbollurnar ofan í sósuna. Raðið mozzarellakúlunum og kirsuberjatómötunum í kringum kjötbollurnar og rífið loks parmesanost yfir.
Setjið í ofn og eldi við 200 gráður í 20-30 mínútur. Berið fram með pasta og góðu ítölsku rauðvíni.