Cecchi La Mora 2012

Það er ekki óalgengt að þrúgur gegni mismunandi nöfnum eftir því hvar þær eru ræktaðar. Toskana-þrúgan Sangiovese gengur þannig undir ýmsum heitum. Í Montalcino er hún nefnd Brunello og í Maremma við sjávarsíðuna í Toskana gengst hún við heitinu Morellino. Eins og nafnið á þessu víni gefur til kynna er þetta því Sangiovese frá undirsvæðinu Scansano í Maremma frá hinu ágæta vínhúsi Cecchi.

Vínið er nokkuð dökkt, bæði í lit og angan, ávöxturinn þroskaður, sólbökuð svört ber, jafnvel út í rúsínur og sveskjur, svolítið kryddað, míneralískt. Ungt og enn svolítið agressívt í munni, dökkur berjaávöxturinn ríkjandi, hressileg tannín. Það borgar sig alveg að umhella þessu víni og það mun vafalítið borga sig að geyma einhverjar flöskur í 2-4 ár. Gæti orðið athyglisvert.

2.350 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.