Það vekur alltaf töluverða athygli hvaða vín það eru sem komast inn á hinn árlega topp 100 lista hjá bandaríska víntímaritinu Wine Spectator. Listinn var birtur nú um helgina og það var spænska rauðvínið Imperial frá vínhúsinu Cune sem hreppti hnossið sem „vín ársins“ að þessu sinni, nánar tiltekið 2004 árgangurinn sem var magnaður í Rioja. Það eru þó nokkur Cune-vín fáanleg hér á landi í vínbúðunum.
Í öðru sæti er hið frábæra vínhús Canon de la Gaffeliere 2010 í St. Emilion í Bordeaux og í því þriðja Domaine Sereine Evenstad Reserve Pinot Noir frá Oregon. Þá má geta þess að Chateau Beaucastel 2010 er í áttunda sæti listans. Það skorar 96 punkta og kostar 120 dollara þar vestra. Hér heima er hægt að sérpatnta Beaucastel í vínbúðunum, bæði 2006 árganginn (95 punktar) og 2007 (96 punktar) og kostar vínið einungis kr. 12.190 eða töluvert minna en í Bandaríkjunum.