Marques de Riscal Proximo 2010

Proximo er ódýrt og einfalt Rioja-vín en frá mjög góðu vínhúsi, Marques de Riscal, sem tryggir að það sé ekki „ódýrt“ þótt það kosti ekki mikið.

Dökkt, þurr sólberja- og krækiberjaávöxtur,stjörnuanís. Milliþyngd, þétt, ungt þurrt,, tannískt, skarpt. sýrumikið.

1.699 krónur. Mjög góð kaup, fær hálfa viðbótarstjörnu fyrir hlutfall verðs og gæða

Deila.