Montes Limited Selection Pinot Noir 2011

Chile hefur smám saman verið að feta sig áfram með Pinot Noir-þrúguna og finna svæði þar sem að hún nýtur sín. Þetta vín frá Montes er ræktað í Casablanca-dalnum norður af Santiago þar sem að svöl hafsþokan frá Kyrrahafinu læðist inn á nóttunni.

Pinot Noir frá Nýja heiminum verður stundum yfirþyrmandi, þetta vín er hins vegar hófstillt og sjarmerandi. Sultuð skógarber í nefi, trönuber, lyng, rósir, þéttur og góður strúktúr, hefur fína sýru en hún er mild, smá dökkt súkkulaði situr eftir í munni ásamt berjunum.

2.498 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.