Bandaríska víntímaritið Wine Spectator er mjög áhrifamikið og ár hvert velur það 100 bestu vín ársins. Vín ársins 2013 voru kynnt fyrir skömmu og nú gerðist það í fyrsta skipti að vín frá Spáni vermdi toppsætið. Það var vínið Imperial Gran Reserva 2004 frá vínhúsinu Cune. Imperial-vínin eru vissulega mögnuð, stór og mikil vín sem eru í senn nútímaleg og halda í hina gömlu hefðir Rioja-héraðsins. Hér á landi er hægt að nálgast Imperial Reserva 2007 bæði með sérpöntun í vínbúðunum og í fríhöfninni í Leifsstöð.
Vínið er dökkt á lit, liturinn djúprinn og þykkur. Í nefi kryddaður, dökkur berjaávöxtur og viður, sólber, ólífur, negull, sedrusviður, vanilla vottur af tóbakslaufum. Öflugt en um leið feitt, samþjappað og mjúkt, tannín mjúk og föst í sér. Hörkuvín fyrir bestu nautasteikurnar og hreindýrið.
4.790 ef sérpantað í ÁTVR. 3.599 krónur í fríhöfninni. Frábær kaup.