Terrunyo Carmenere Block 27 2009

Concha y Toro er stærsta vínhús Chile og á margar af bestu ekrum landsins. Í Terrunyo-línunni eru dregin fram afmörkuð svæði með einstökum eiginleikum. Terrunyo Blockc 27 hefur markað sér stöðu sem eitt allra besta Carmenere-vín Chile en það er frá Peumo-vínekrunni í Rapel.

Stórt og mikið, svarblátt og djúpt í litnum. Míneralískt í nefi, rykugt, þurr ekvalyptus, mjög dökkur, berjaávöxtur, jarðbundið vín, ef það væri söngvari væri það djúpur bassi. Stórt um sig, tannískt. Þetta er vín sem má vel geyma en ella er best að umhella því 1-2 klukkustundum áður en það er borið fram.

4.999 krónur. Góð kaup.

Deila.