Pascal Jolivet Sancerre 2012

Þótt margir tengi kannski Sauvignon Blanc við Nýja heiminn, Chile og Sauvignon Blanc, þá er þetta hennar eina sanna konungsdæmi, þorpin Sancerre og Pouilly-Fumé austast í Loire-dalnum í Frakklandi. Pascal Jolivet er einn af allra fremstu framleiðendum svæðisins, vínin hans eru alla jafna unaðsleg, fersk, lifandi og endurspegla þessa stórkostlegu þrúgu fullkomlega.

Sancerre 2012 er míneralískt í nefi í bland við sítrusmikinn ávöxt, lime og limebörkur. Tært og  lifandi í munni, ferskt og langt. Vín sem kallar á t.d. bleikju eða lax.

3.799 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.