Two Oceans Pinot Grigio 2010

Heiti þessa víns vísar til þess að tvö úthöf, Atlantshafið og Indlandshafið, mætast við suðurodda Afríku en þar er einmitt víngerðarsvæði Suður-Afríku að finna.

Two Oceans er líka vín sem vakið hefur heimsathygli eftir að hið áhrifamikla rit Roberts Parkers, The Wine Advocate, tók vín fyrirtækisins sem dæmi tvö ár í röð um vín er gætu bæði verið mjög spennandi og mjög ódýr í senn.

Þetta hvítvín úr Pinot Grigio-þrúgunni hefur þokkafulla og þægilega angan af perum, apríkósum og ferskjum. Ávöxturinn þroskaður og sætur en vínið þurrt og ferskt með mildri sýru og silkimjúkri áferð.

1.599 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.