Freyðivín sem kennd eru við Cold Duck eru yfirleitt hálfsæt. Lengi vel voru þau vinsæl í Bandaríkjunum en nú njóta þau sérstaklega mikilla vinsælda á Suðurhvelinu sem fordrykkur. Þetta suður-afríska freyðivín frá Stellenbosch er blanda úr hvítvíni og rauðvíni sem kolsýru er bætt saman við.
Vínið hefur fallegan dökkbleikan lit og angan þess einkennist af sykurlegnum jarðarberjum, rifsberjasultu og karamellu eða öllu heldur dulce de leche. Nokkur sæta í munni en fersk sýra vinnu vel á móti og gerir vínið ágætlega létt.
1.299 krónur. Verðið tryggir víninu þriðju stjörnuna.